Flest ef ekki öll börn hafa gaman af því að syngja og dansa. Þeim finnst gaman að læra vísur, sérstaklega ef þeim fylgja ákveðnar hreyfingar og leikir. Vísur eru skemmtilegar og segja oft stuttar sögur af skemmtilegum atburðum, persónum eða dýrum.
Hér á síðunni Börn og tónlist má finna vísur sem henta börnum allt frá unga aldri og alveg upp í fyrstu bekki grunnskólans. Tilvalið er að heimsækja þennan vef þegar eiga á góða samverustund. Hér er að finna fjölbreytt safn af vísum og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vefsvæðið Börn og tónlist er gert með styrk úr Þróunarsjóði leikskóla. Það er hluti af starfi Heilsuleikskólans Urðarhóls og í umsjá Birte Harksen, en er opið öllum, og allir eru velkomnir til að taka þátt í að byggja vefinn upp og bæta inn skemmtilegu og gagnlegu efni eða bara koma með athugasemdir og viðbætur við það sem er hér fyrir.